MySpace
myspace music


Rökkurró



Last Updated: 11/18/2009

Send Message
Instant Message
Email to a Friend
Subscribe

Status: Single
City: Reykjavík
Country: IS
Signup Date: 2/12/2006

Blog Archive
[Older      Newer]
 /  / 
Wednesday, November 04, 2009 
Hi! If you want to follow the making of our new album, go check out our new photoblog: www.rokkurro.tumblr.com Expect more photos, song snippets and news as we go along! -Árni // Rökkurró
Monday, October 12, 2009 
It..s been almost a year since we last posted a blog. Weak, I know. But we..re back now and hope to see some of you at Airwaves!

More fun news on the way soon!


-----------------
Rökkurró during Airwaves!
-----------------


Rökkurró are playing a total of three times during the Airwaves festival: once on-venue and twice off-venue. These will probably be some of the last shows we play this year because we..re heading into the studio to record our next album two weeks after Airwaves! 


1.
-----------------
Thursday: 
Off-venue in 12 Tónar at 18:00


2.
-----------------
Thursday:
On-venue in Hafnarhúsið at 19:30


3.
-----------------
Saturday:
Off-venue at the Hostel on Vesturgata at 16:00


Hope to see you all there!

-Rökkurró
Thursday, October 09, 2008 

Current mood:  jedi
Hi everybody,
Ég nennti ekki að skrifa bæði á íslensku og ensku þannig að Íslendingar, ekki vera pirripú, lesið'etta bara!

Thought we should share news with you!
We have some good news and some bad news.

Let's start with the sad news.
Our guitar/bass player Arnór is leaving the band. He has decided to turn to other things in life and is going to leave the band after Iceland Airwaves. All is good and we're all still friends although of course it is always sad to say goodbye. But we've decided to look at this as a new start for us and a chance for us to grow and do new things. We will be adding a new member to the band and are currently looking for someone to take Arnór's part. But let me tell you, it's hard to fill this boy's shoes. Hard to find a pretty boy like Arnór, but hey..we'll work this out.
Because of these circumstances we've decided to cancel the tour we were planning to go on in Germany and surrounding countries in November/December.

But as I said there is a lot going on with Rökkurró these days and the future is looking bright. Our album will be released in Japan in the next days ( we think it's October 16th) by Rallye/Klee Label (check them out in our top friends!) This of course will be Special Japan edition with two songs from our first EP. And some crazy cute japanese artwork! We're very exited and hope this will lead to a tour in Japan, but we'll see how things go.

We have now started a collaboration with a booking agency, Kolleqt Booking, that will help us arrange tours in 2009. We are now starting to arrange a tour in the first months of 2009 and of course we will let you know how that turns out, as soon as we've got any dates!

So dear friends, if you're attending Iceland Airwaves this year, make sure you'll catch our very special last concert with Arnór. It will take place at Iðnó, Saturday, 8 PM.

Love,
Hildur / Rökkurró
Currently listening:
Overpowered
Release date: 2007-10-23
Saturday, February 23, 2008 

Category: Music
Hi there,

This post is maybe more for our friends outside of Iceland. 12 Tónar, with help from the great website Grapewire, have finally opened a web-shop. I think I´m not lying when I say that all the most recent 12 Tónar releases are available there. I recommend that you check it out!

Buy our album online

And also you should check out the Iceland Airwaves Grapewire site. There´s loads of good Icelandic music there aswell. We are also very proud to say the our album is the second most popular on the Airwaves Grapewire site! YAY!

Anyway, take care,

R
Currently listening:
You Fail Me
By Converge
Release date: 21 September, 2004
Saturday, February 23, 2008 

Category: Music
Sæl og blessuð,

Við fengum rosafínu umfjöllun á heimasíðunni rockzoom.de og langaði að deila henni með ykkur! Þarna eru líka rosaflottar umfjallanir um frábærar íslenskar hljómsveitir og listamenn á borð við Ólöfu Arnalds, Reykjavík! og múm.

Tjékkið á þessi HÉR

Hér er síðan umfjöllunin um okkur

Rökkuró (von www.12tonar.is)Diese Band sollte eigentlich schon längst außerhalb Islands ein Begriff sein! „Það kólnar í kvöld" heißt ihr isländischsprachiges Debut. Eine wunderschöne Frauenstimme wird tatkräftig durch Cello, Ziehharmonika, Glockenspiel und „cleanem", beziehungsweise akustischem Gitarrenspiel unterstützt. Die oftmals melancholisch stimmende Musik ist unaufdringlich und aufregend zugleich. Sie regt dazu an, genauer hinzuhören und die Geschichte hinter den isländischen Texten zu erforschen. Ein so ausgefeiltes, durchdachtes und schönes Erstlingswerk habe ich selten zuvor hören dürfen. Mehr als nur ein Geheimtipp! Erhältlich ist das Album unter anderem auf 12tónars Downloadseite (siehe Link unter „Plattenlabels"). Wer sich Lieder in voller Länge anhören will, der sei auf Rökkurós myspace- Seite verwiesen!
( www.myspace.com/rokkurro )


Ef þið lesið ekki þýsku þá er alltaf klassískt að henda þessu í google-translate... það er allavega það sem ég gerði.

Hafið það sem best,

R
Currently listening:
I Care Because You Do
By Aphex Twin
Release date: 25 April, 1995
Tuesday, December 25, 2007 

Rökkurró - Það kólnar í kvöld... / 12 Tónar

4,5 / 5

Rökkurró er hljómsveit skipuð 5 ungmennum úr Reykjavík. Meðlimir Rökkurróar komu saman í byrjun árs 2006 og var markmið bandsins í fyrstu að covera lög úr kvikmyndinni Amélie.  En (sem betur fer) varð ekkert úr því heldur tóku þau upp á því að gera sína eigin ´Amélie´-tónlist.  Þegar árið 2006 var rétt hálfnað var Rökkurró búin að gefa út fjögurra laga EP plötu sem seldist upp og gerði þeim kleift að fá plötusamning hjá 12 tónum.

Dyggir hlustendur Rásar 2 ættu að kannski að kannast við Rökkurró þar sem lagið Ringulreið hefur verið mikið spilað þar síðustu mánuði.

Ég verð að viðurkenna að þegar ég fékk fyrst Það kólnar í kvöld í hendurnar þá vissi ég ekkert um þetta band. Ég hélt að þetta væri einhvers konar þungarokksband. Boy, was I wrong. Rökkurró sko allt annað en þung. Hún er meira klassísk, seiðandi og full af dulúð uppi á illa lýstu háalofti.

Mér finnst svolítið erfitt að skilgreina hvernig tónlist Rökkurró spilar. Á vefsíðu Rökkurróar segja þau sína áhrifavalda vera rökkur, háaloft og pöndur (??) og hjálpar það svona dálítið við að útskýra tónlist þeirra því að hún minnir mig ótrúlega á einhvers konar háaloftsstemmingu og rökkrið sem liggur yfir landinu þessa daganna. Ég hef ekki enn fundið hvað pöndur hafa með málið að gera en það kemur kannski seinna.

Það kólnar í kvöld hefur varla farið úr spilaranum mínum síðan ég fékk hana og ég verð að segja að þetta er ein af þessum plötum sem mér finnst alveg magnaðar.  Hún hefur gjörsamlega brætt hjarta mitt (og það er ekki auðvelt).

Platan hefur nánast allt það sem mér finnst oftast leiðinlegt að hlusta á eins og klassísk hljóðfæri (fiðlur, selló og slíkt) og íslenska texta. Hér eru allir textarnir á  íslensku, textar sem segja sögur og eru góð tilbreytni í þeirri stækkandi flóru íslenskra banda sem syngja eingöngu á ensku.  Þessi plata tekur mig aftur í tímann en er á sama tíma nútímaleg. Mér finnst ég verða lítil stelpa aftur. Lítil stelpa að hlusta á sögustund. Textarnir ná til mín, þeir eru um eitthvað, þeir segja sögur. Sögur sem ég vil hlusta á.

Hér er smá textabrot úr fyrsta lagi plötunnar - „Hún".

Börnin grétu gleði tárum því hún var komin aftur...sú sem allir elskuðu...endurheimt úr helju..

  „Hún" er að mínu mati eitt besta lag plötunnar. Einnig eru „Ringulreið" og „Heiðskýr heimsendir" góð. Annars eru öll lögin góð. Ég get varla gert upp á milli þeirra.

Ég gæti farið út í langa romsu um hvað það er sem gerir þessa plötu svo frábæra en ég ætla ekki að blaðra og blaðra heldur bara mæla með að allir upplifi Það kólnar í kvöld sjálfir. Þið munið ekki sjá eftir því.

Einhvers staðar las ég umfjöllun um Rökkurró þar sem hún var sett í hóp svokallaðra ´krútthljómsveita´ (eins og Sigur Rós, Múm og álíka bönd) en ég verð að segja að mér finnst Rökkurró ekki alveg falla inní þann hóp. Jú, þau eru svo sannarlega krúttleg en þau hafa nokkuð fram yfir þessi týpísku krúttbönd að færa. Þau eru með jólaljósin kveikt á háaloftinu.

Þessi plata fær 4,5 í einkunn hjá mér.  Mér finnst hún frábær, vel spiluð, vel sungin og augljóslega hefur verið sett mikil sál í hana.  Það eina sem ég gæti fundið að henni er að ég held ég eigi ekki eftir að hlusta mikið á hana svona rétt yfir hásumarið.

Tuesday, December 25, 2007 

Sælinú,

Árni Matt. var svo elskulegur að plötunni okkar á lista yfir bestu plötur ársins. Tjékk it:

Plötur ársins (Árni Matt.)

Svo komumst við líka á lista rjómans.is yfir bestu íslensku plötur ársins.

20 Bestu íslensku plöturnar (rjóminn.is) 

 

Við erum öllum þeim sem hafa hjálpað okkur, mætt á tónleika, keypt plötuna og sýnt okkur stuðning ævinlega þakklát fyrir að hafa gert þetta að einstökum ári. Við getum aldrei þakkað ykkur nóg.

Ástarkveðja,

Rökkurró

Sunday, December 02, 2007 

Current mood:  drunk
TÓNLIST - Íslenskur geisladiskur

Fallegt vetrarkvöld með Rökkurró

Rökkurró – Það kólnar í kvöld...stjörnugjöf: &sstar;{sstar}&sstar;{sstar}

TÓNLIST Rökkurróar er róleg og melódísk. Erfitt er að skeyta henni saman við einhverja sérstaka stefnu – það má reyndar kalla þau indie-band en líklega er það of einföld skilgreining.

TÓNLIST Rökkurróar er róleg og melódísk. Erfitt er að skeyta henni saman við einhverja sérstaka stefnu – það má reyndar kalla þau indie-band en líklega er það of einföld skilgreining. Einnig daðra þau ófeimin við franska vísnatónlist auk þess að hafa sérstakt eyra fyrir tregablandinni popptónlist.

Lagasmíðar sveitarinnar eru óvenju góðar, bæði hvað varðar melódíur og texta. Þau lýsa vel rólegu og þroskuðu fasi Rökkurróar en eru engu að síður fjölbreytt og koma sum hver mjög á óvart. Lagið „Ferðalangur" vakti strax athygli mína hvað þetta varðar. Í því er sérlega heillandi stef sem tekur einföldum en áhrifaríkum breytingum undir lok lagsins. Framan af laginu syngur söngkona sveitarinnar ein – eða þar til í síðasta versi en þar tekur við samsöngur sveitarinnar allrar og breytir hann stefnu lagsins á sérlega tregafullan hátt. Vel gert.

Söngkona Rökkurróar er eftirtektarverð. Hún er með háa rödd sem myndar óhefðbundið mótvægi við flauelskenndan hljóðfæraleikinn. Í fyrstu þótti mér hún stinga í stúf við hljómsveitina en um leið og ég vandist hljómi hennar varð ég heilluð af styrk hennar og sérstöðu. Mér þykir hún best þegar hún syngur af krafti.

Mér finnst mikilvægt að hrósa Rökkurró sérstaklega fyrir hljóðfæraleik. Þau flytja tónlist sína af hæfni auk þess að vera óhrædd við að reyna að rata nýjar leiðir í samspili sín á milli. Trommuleikurinn vakti hjá mér sérstaka eftirtekt sökum þess hve létt og frumlega á trommurnar er slegið. Við þetta má bæta að sellóleikurinn er hreinn unaður í „Hetjan á fjallinu" og reyndar mörgum fleiri lögum. Lagið „Allt gullið" er annað lag sem ég heillaðist af. Í stað þess að semja hefðbundið popplag er kaldranaleg samsuða hljóðfæra notuð til þess að gera leikið viðlag við sungin vers. Upp úr því hefst áhugaverður hljómur sem ég á erfitt með að finna fordæmi fyrir.

Þrátt fyrir að vera afskaplega vönduð hljómsveit þykir mér Rökkurró hika aðeins á plötunni. Í gegnum tónlist þeirra má greina kraftmikið afl sem kemst ekki alltaf nægilega vel til skila í lögum plötunnar – það er sem þau gangi rökkrinu fullmikið á vald á stöku stað. Slökustu lögin eru þó ágæt en þau sterkustu eru frábær. Því verður Það kólnar í kvöld... að teljast ákaflega góð plata og áhrifamikil byrjun á ferli.

Helga Þórey Jónsdóttir



Currently listening:
Master and Everyone
By Bonnie ’Prince’ Billy
Release date: 28 January, 2003
Monday, October 22, 2007 
Sæl veriði,

Okkur langaði að færa ykkur smá tíðindi af plötunni okkar! Þannig er mál með vexti að henni seinkaði aðeins í prentun og þar sem að Airwaves var einmitt á næsta leiti þegar okkur bárust þessar fréttir ákváðum við bara að föndra nokkur eintök af svona "limited edition". Útkoman varð síðan 84 eintök af handsaumuðum eintökum sem eru ótrúlegt en satt öll farin. Þannig ef þú kræktir þér ekki í eintak þá verður þú því miður bara að bíða eftir prentuðu útgáfunni. En hún kemur einmitt núna seinni partinn í þessari viku! Okkur hlakkar öllum svakalega til að leyfa sem flestum að heyra því við erum mjög stolt af gripnum!

Frekari fréttir berast um leið og við vitum nákvæmlega hvenær hún kemur!

Svo viljum við líka þakka öllum sem komu og sáu okkur í Airwaves vikunni. Okkur þótti ótrúlega vænt um hversu margir komu í Iðnó og 12 tóna og við vonumst auðvitað til að sjá ykkur öll aftur!

Takk kærlega!


-------


And for our English speaking friends:

We´d just like to bring you some news on our first album, Það kólnar í kvöld... It got a little delayed in printing so we decided to make ourselves 84 copies of some kind of "limited editon" and incredibly they have all sold! But don´t panic because the printed version gets here this week and will be available in all record shops in Iceland and you can also order it from us and the 12 Tónar website (www.12tonar.is)

When we have any further news about a deffinate release date we´ll let you know!

We´d also like to thank everyone that came to our show this past week! We were really moved about how many showed up for the Iðnó and 12 tónar gig.

Thank all of you so much!

We´d especially like to thank our friends Sam and Roo for haning our with us at the beercar! Hopefully we´ll meet again!
Currently listening:
Drums and Guns
By Low
Release date: 20 March, 2007
Sunday, September 02, 2007 

Current mood:  anxious
Eftir tíðindalaust sumar er loksins komið að því Rökkurró fari að gera eitthvað af alvöru aftur. Við erum byrjuð að æfa aftur, bæði nýtt dót og gamalt. Þannig þið getið látið ykkur hlakka til tónleika og einhvers skemmtilegs núna fljótlega.

Við klárum svo líka plötuna okkar núna í vikunni og hún verður komin út í kringum næstu mánaðarmót ef allt gengur að óskum.

Stay tuned!
Currently listening:
You Fail Me
By Converge
Release date: 21 September, 2004