MySpace


.... and the devil is Zigz



Last Updated: 7/2/2009

Send Message
Instant Message
Email to a Friend
Subscribe

Gender: Male
Status: In a Relationship
Age: 30
Sign: Aries

City: Hafnarfjörður
Country: IS
Signup Date: 4/28/2006

Blog Archive
[Older      Newer]
 /  / 
Friday, March 20, 2009 
Microsoft heldur úti vefsíðu sem heitir microspotting.com þar sem sagðar eru sögur og fréttir af starfsfólki fyrirtækisins. Allt voða gaman. Nýlega fór síðan að bjóða upp á boli langar mig mikið í bol sem á stendur I am the empire, enda oft við mig sagt að ég vinni fyrir "the evil empire". Ég hef alveg húmor fyrir því og finnst þessi bolur því mjög snjall :)
Annars er það skilyrði fyrir því að fá bolinn sendann að blogga um þessa síðu og lofa að birta mynd af sér í bolnum ;)
 
Friday, December 07, 2007 
Já ég sótti nú um nokkrar vinnur þó svo að ég væri ekki einu sinni búinn í prófum enda langaði mig að fara í nokkur atvinnuviðtöl til að æfa mig. Nema hvað að ég fór í fjögur atvinnuviðtöl, öll hjá sama fyrirtækinu, og var að lokum boðið starfið. Ég byrja 14. jan sem Viðskiptastjóri hjá Microsoft. Fyrsta vinnan sem ég sótti um :)
Currently listening:
Fighting the World
By Manowar
Release date: 25 October, 1990
Tuesday, May 22, 2007 
Prófin búin og gekk mér vel í þeim. Nú fer að styttast í að maður byrji á lokaritgerðinni en ég hef tekið að mér að gera markaðsáætlun fyrir Húsasmiðjuna.
Illa gekk að finna sumarvinnu sem tengist mínu námi þannig að ég endaði á því að taka að mér að starfa í Vínbúðinni í Garðabæ. Þetta er lítil og notaleg búð og er ég því strax orðinn öllum hnútum kunnugur og orðinn vínfræðingur hinn mesti. Kostir þessa starfs eru þeir að þetta er ekki vaktavinna eins og ég hef vanist undanfarin ár heldur bara venjuleg dagvinna 10-18 og svo reyndar annar hver laugardagur. Það ætti ekki að vera svo erfitt að redda fríi á laugardögum þannig að ég er í fríi öll kvöld og flestar þær helgar sem ég kýs. Gallar þessa starfs eru þeir að mig langar rosalega mikið til að kaupa hin ýmsu vín og bjóra og drekka hina ýmsu daga. Hingað til hef ég aðeins leyft mér að kaupa einn bjór, eina rauðvín og eina hvítvín. Bjórinn heitir Belhaven Stout frá McCallum og er skoskur og býsna góður enda með keim af malti, lakkrís og karamellu. Vínin eru bæði ítölsk enda ítalskir dagar í maí í vínbúðum landsins og eru því ódýrari en ella og hvet ég vínáhugafólk til að nýta sér það og bæta í vínrekka sína.
Spáin fyrir helgina: mikil drykkja enda Hvítasunnuhelgi (frí á mánudag) og Guðjón hinn hressi flytur heim frá Prag á fimmtudag og verður væntanlega vel tekið á móti honum.
Friday, April 27, 2007 
Ég get útvegað hverjum þeim sem vilja líkamsræktarkort í Iceland Spa and Fitness.
Um er að ræða árskort sem gilda þá á alla fimm staðina og kostar kr. 25.000. Venjulegt verð er kr. 43.000.
Áhugasamir hafi samband við mig, e-mail eða síma.
sigurdurf@ru.is eða 6974416
Wednesday, February 07, 2007 
Which Dead Rock Star Are You?



Richey Edwards
You are Richey James Edwards! You're a manic! You aren't too good when it comes to making music, but you're smart and can write well. You're honest and quiet, but different. You are beautiful! Oh, he disappeared in 1995 while on tour with his band Manic Street Preachers.
Take The Quiz Now!Quizzes by myYearbook.com
Monday, January 22, 2007 
Í dag á að vera leiðinlegasti dagur árisns samkvæmt einhverjum snilldar vísindamönnum frá Bretlandi. Nógu slæmur var nú gærdagurinn, fyrir mig að minnsta kosti. Hann reyndar byrjaði vel því ég fékk mjög góðann morgunverð sem að var ávaxtaslat. Síðan var haldið í ræktina og tekið vel á því, farið í pott og gufu og flogið síðan á hausinn í tröppunum. Síðan leið yfir mig í sturtunni. Sem betur fer greip einhver maður mig en áður en ég var búinn að ranka við mér hafði einhver hringt á sjúkrabíl. Ég ranka við mér, fer aftur í sturtu og í því kemur löggan. Stuttu seinna koma sjúkraflutningamennirnir og gera allskonar mælingar og komast að því að ég er með of lágan blóðsykur. Þeir skipa mér svo að borða meiri sykur.
Til að kóróna daginn tapaði svo Man Utd fyrir Arsenal og Ísland fyrir Úkraínu. Semsagt versti dagur ársins.
Currently listening:
Cowboys From Hell
By Pantera
Release date: 17 July, 1990
Friday, December 22, 2006 

Current mood:  calm
Svo virðist sem gríðarleg eftirspurn sé eftir því að ég bloggi meira og mun ég að sjálsögðu verða við því. Að bloggara sið mun ég rita um ótrúlega ómerkilega og leiðinlega hluti sem enginn hefur áhuga á en forvitnir verða að lesa samt sem áður.
Fyrst ber að nefna að ég er búinn í prófum fyrir þetta árið og gengu þau með ágætum. Einnig hef ég lokið við utanlandsferðir fyrir þetta ár og lét ég tvær nægja, til BNA og Danmerkur. Næst á dagskrá er að ljúka jólainnkaupum en ég nenni því ekki og læt það bíða til Þorláksmessu. Annars er ég að spá í að fara út í búð og kaupa í matinn og elda eitthvað gott í kvöldmatinn og koma þar með Heiðu skemmtilega á óvart.
Ciao
Currently listening:
The Time of the Oath
By Helloween
Release date: 16 May, 2006
Monday, May 22, 2006 

Current mood:  anxious
Síðasta prófið mitt er í fyrramálið og er það minn erkióvinur stærðfræðin. Síðan fer ég um kvöldið í Laugardalshöll að sjá og heyra meistara Ian Anderson leika Jethro Tull slagara. Síðan er það bara California á miðvikudag, flogið kl.17, kem heim þann 9. júní rétt fyrir kick off á HM. Ég fer á tónleika hálfs Pink Floyd í Egilshöll 12. júní annars er það bara standandi HM gleði næsta mánuðinn.
Mig er farið að langa mikið að fara á Roskilde. Það verður varla neitt úr því þetta árið. Fer bara í golf í staðinn.