MySpace
myspace music


Motion Boys



Last Updated: 7/15/2009

Send Message
Instant Message
Email to a Friend
Subscribe

Status: Single
Country: IS
Signup Date: 7/6/2006

Blog Archive
[Older      Newer]
 /  / 
Friday, December 12, 2008 
Motion Boys hafa ákveðið að gefa út nýjan síngúl. Lagið er titillag plötunnar Hang On og í því má meðal annars heyra frábæran saxófónleik Óskars Guðjónssonar. Það sem er einstakt við þessa útgáfu Motion Boys er að ef þú festir kaup á laginu t.d. á tónlist.is þá færðu fjögur lög til viðbótar frítt. Lögin fjögur eru persónulegar útgáfur liðsmanna hljómsveitarinnar af Hang On. Bjössi tók sig til og söng lagið sjálfur. Lagið er einskonar tilbrigði við upprunalegu útgáfuna og heyra má áhrif frá Sinead O..Connor, Prince og ekki síst Rolling Stones. Biggi gerði eitthvað allt annað. Hans tilbrigði er hraðara og á meira skylt við Talking Heads og Bowie. Það er einnig dansvænt og taugaveiklað. Tobbi hljómar á köflum eins og Neil Young í sinni kántrískotnu rokk útgáfu af Hang On. Þekking hans á röddun fær að njóta sín og manni líður eins og maður sé að hlusta á eitthvað sem gæti átt heima á Deja Vu með Crosby Stills Nash og Young. Tobbi gerði sér lítið fyrir og spilaði á öll hljóðfærin fyrir þessa upptöku. Gísli Galdur notaði mikið af Óskari Guðjóns í sinni útgáfu og saxófónarnir flæða um allt í furðulegu en jafnframt stórskemmtilegu lagi. Ef þú lokar augunum og einbeitir þér þá er allt eins víst að þú fljótir með í ævintýrinu.

Farið endilega við fyrsta tækifæri og fjárfestið rafrænt í nýja sínglinum hjá Motion Boys.
Þetta er bara allt of gott tækifæri til að sleppa því.

-Ragnar Eysteinsson (SFE Fulltrúi í tónlist hjá AG.Dov.Comp)
Wednesday, November 19, 2008 

Category: Music
Kæru landsmenn. Það verður sannkölluð slagaraveisla á Nasa föstudagskvöldið 21. nóvember. Þá munu þrjár af vinsælustu hljómsveitum landsins, Sprengjuhöllin, Hjaltalín og Motion Boys, standa fyrir miklu balli langt fram á nótt.

Sprengjuhöllina er óþarft að kynna. Hún sló eftirminnilega í gegn í fyrra með plötunni Tímarnir okkar og sendi á dögunum frá sér sína aðra plötu, Bestu kveðjur, sem nú er rifin út úr hljómplötuverslunum í kassavís. Hjaltalín sló einnig í gegn í fyrra með plötu sinni Sleepdrunk Seasons en hefur á þessu ári heldur betur bætt í vinsældir sínar með mest spilaða lagi ársins, Þú komst við hjartað í mér. Motion Boys er sveit sem hefur sent hvert lagið á fætur öðru á topp vinsældalistanna undanfarin tvö ár og sendi nú í haust frá sér sína fyrstu plötu og ber hún nafið Hang On.

Allir sannir aðdáendur íslenskrar popptónlistar skulu mæta á Nasa föstudaginn 21. nóvember og rífa sig upp úr skammdeginu og kreppunni. Verðlaun veitt fyrir best pússuðu skóna.

Miðaverð er aðeins 1.500 krónur (sama og einn poki af lífrænt ræktuðum hnetum í klukkubúð). Húsið opnar kl. 23:00 Vert er að taka fram að slagaraveisla þessi er studd af Jack Daniels. Forsala á miði.is(http://midi.is/tonleikar/1/5364)
Tuesday, November 18, 2008 
Lagið okkar Five 2 Love er að standa sig vel. Það er núna komið í 8.sætið á rás 2. En það náði því fyrir tveimur vikum síðan. Nú er það aftur á uppleið og því finnst okkur tilvalið að beina því til þeirra sem fíla lagið að hjálpa okkur að ná því alla leið á toppinn.

Þú getur kosið með því að fara á ruv.is/topp30 eða hringt í síma 5687123.
Einnig er hægt að biðja um óskalag hér:

http://www.ruv.is/heim/vefir/ras2/poppland/oskalog/

Getur ekki verið einfaldara.

------------------------------------------------------------------
Our single: Five 2 Love is doing great by hanging on in the never ending chart batte. If you want to support this heroic song please vote for it on ruv.is/topp30. You can also ask for it here:

http://www.ruv.is/heim/vefir/ras2/poppland/oskalog/

It..s easy.

-MB
Thursday, November 13, 2008 

Category: Music
Já það er víst. Við ætlum að gera allt vitlaust á Prikinu á föstudagskvöldið 14.nóv.
Við erum búnir að vera að pæla lengi í því að spila þröngt og nú loksins verður af því.

Gleðin byrjar kl.22:00

Mætið á sleipum skóm svo að þið getið flotið um gólfið.

-MB
Saturday, October 11, 2008 
Hang On með Motion Boys er komin í verslanir.

Platan inniheldur smáskífurnar Waiting To Happen, Hold Me Closer To Your Heart, Steal Your Love, Queen Of Hearts og nýjasta lagið Five 2 Love. Sena gefur út. 

-MB
Tuesday, October 07, 2008 
Fyrsta plata Motion Boys sem ber nafnið Hang On kemur út þann 09.október næstkomandi. 
 
Platan inniheldur smáskífurnar Waiting To Happen, Hold Me Closer To Your Heart, Steal Your Love, Queen Of Hearts og nýjasta lagið Five 2 Love. Sena gefur út. 
 
Útgáfutónleikar Motion Boys verða haldnir á Nasa þennan sama dag 9.október. Þar munu þeir flytja plötuna í heild sinni auk þess sem þeir prufukeyra heimagerðan hljóðgervil í fyrsta skipti opinberlega.  Miðaverð er annars vegar 1500 kr og þá fylgir diskurinn með eða 500 kall. Sérstakir gestir á tónleikunum verða Sprengjuhöllin.
Wednesday, September 03, 2008 
Five 2 Love is the first song released by Motion Boys where you can hear the CPL-593H, a synthesizer created by the band. The synth is rather unwieldy and needs a lot of electricity to function because it..s a prototype but it won..t keep the band from using it in the upcoming concerts. The synth is already essential to the bands sound.

Richard M. Banksley is a former audio-engineer the band met at Bath (England) last year. He is the co-creator of the CPL-593H. Banksley is no stranger to this kind of work and is actually known for his part in the creation of The Oberheim OB-1 synthesizer released in 1978. Banksley now works as a teacher at the City of Bath College and was recently recruited as Nigel Perrin..s assistant conductor for the The City of Bath Bach Choir. He..s is also the band..s PR Person.

Five 2 Love er fyrsta lagið með Motion Boys þar sem heyra má í CPL- 593H sem er hljóðgervill smíðaður af hljómsveitinni. Hljóðgervillinn er frekar klunnalegur í útliti og þarf mikið rafmagn enda um frumgerð að ræða en Motion Boys ætla þó ekki að láta það aftra sér frá því að nota hann á komandi tónleikum. Hljóðgervillinn er í dag stór partur af hljóðheimi sveitarinnar.

Richard M. Banksley er fyrrum upptökumaður og rafmagnsverkfræðingur sem hljómsveitin kynntist í Bath á Englandi á síðasta ári og hjálpaði Motion Boys að smíða gripinn. Banksley er ýmsu kunnur en þess má geta að hann vann að gerð Oberheim OB-1 hljóðgervilsins sem kom út árið 1978. Banksley vinnur í dag sem kennari við háskólann í Bath og hefur nýlega verið ráðinn aðstoðarmaður Nigel Perrin í Bach-kórnum í Bath (The City of Bath Bach Choir).
Hann sér nú einnig um almannatengsl Motion Boys.
Tuesday, September 02, 2008 

Current mood:  artistic
Motion Boys releases Five 2 Love, regarded by many fans as a live favourite.

A catchy melody, beautiful chord sequences, pounding rythm, the odd midsection and lyrics that will leave you absolutely restless.

All this and much more in five minutes flat.

The band..s first album, Hang On, will be out on the 1. of october.
The album was recorded at Greenhouse Studios and produced by Valgeir Sigurðsson and Motion Boys.

-Richard M. Banksley

MB-Public relations
19-20 St James Parade, Bath, Somerset, BA1 1UL


Motion Boys gefur út lagið Five 2 Love sem hefur verið í miklu uppáhaldi hjá tónleikagestum sveitarinnar.

Grípandi melódía, fallegar hljómaskiptingar, dúndrandi rythmi, skrýtinn millikafli og texti sem skilur eftir sig spurningar. Allt þetta og miklu meira á aðeins fimm mínútum.

Fyrsta plata sveitarinnar, Hang On, kemur út 1.október næstkomandi og er gefin út af Senu. Platan var tekin upp í Gróðurhúsi Valgeirs Sigurðssonar í sumar og var sá hinn sami einmitt upptökustjóri plötunnar.
Sunday, June 29, 2008 
Nýja Motion Boys smáskífan "Queen of Hearts" fæst nú á tónlist.is.
Hún er einnig væntanleg á grapewire.net - smekkleysa.net

"Queen of Hearts", the new Motion Boys single is now available on tonlist.is.
It will also be available on grapewire.net - smekkleysa.net.


-MB
Thursday, June 26, 2008 
The Motion Boys have released their new song called "Queen of Hearts". Motion Boys are currently working on their new album wich will be out late this summer.

Hope you enjoy!

-MB

Motion Boys gefa út nýtt lag sem nefnist "Queen of Hearts". Motion Boys eru staddir í stúdíóinu og eru að vinna að nýju plötunni sem kemur út seint í sumar.

Vonandi fíliði lagið!

-MB