MySpace
myspace music


Coney Island Babies



Last Updated: 9/24/2009

Send Message
Instant Message
Email to a Friend
Subscribe

Status: Single
City: Neskaupstaður
Country: IS
Signup Date: 10/21/2006
Wednesday, November 26, 2008 

Tónleikar 28.11.08

Kæru nærsveitungar og aðrir!

Þið afsakið bloggletina en hún endurspeglar lítið félagsstarf hljómsveitarinnar undanfarna mánuði. Síðustu vikurnar er aftur á móti allt komið á fullt gas (gas! gas! gas!) hjá okkur. Um síðustu helgi lékum við á opnunarhátíð Egilsbúðar sem gekk svona líka ljómandi vel. Um næstu helgi (á fös kl. 21) leikum við svo á tónleikum í Blúskjallaranum ásamt rokkparinu Svavari og Berglindi sem oftast eru kennd við hljómsveitina Skakkamanage. Verður mikið rokkað þá og eins og alltaf eru allir velkomnir, ókeypis inn og blablabla.

Annars hafa orðið breytingar á hljómsveitinni. Guðmundur nokkur Höskuldsson hefur fyllt upp í göt hjá okkur á tónleikum með afar blæbrigðaríkum gítarleik og flestir sem svona yfirleitt hafa skoðanir á bardúsi hljómsveitarinnar segja bandið þéttara fyrir vikið. Við fögnum því nottla. Guðmundur kemur frá Reykjavík en er sko ekkert merkilegri en við! Og hann spilar ekki með gítarnögl sem mér finnst fullkomlega far out.

Framundan eru fleiri tónleikar, vonandi einu sinni í mánuði, og svo erum við alltaf í plötupælingum. Við erum bara svo fokking latir að líklega kemur fyrsta (tveggjalaga) platan okkar út í kringum 2050.

Kv.

Jón. 

Previous Post: Á Stöddaranum | Back to Blog List | Next Post: Loksins í hljóðver