MySpace
myspace music


Jakobínarína [R.I.P.]



Last Updated: 7/15/2009

Send Message
Instant Message
Email to a Friend
Subscribe

Status: Single
City: Hafnarfjörður
Country: IS
Signup Date: 4/21/2005

Who Gives Kudos:


Tuesday, February 05, 2008 
Íslendingar nær og fjær,

Við í hljómsveitinni Jakobínurínu staðfestum hér með þann fréttaflutning um að sveitin sé að hætta störfum. Mörgum kemur kannski á óvart að við höfum ákveðið að leggja upp laupana en aðdrangandinn hefur verið nokkuð langur. Enginn ágreiningur er innan sveitarinnar og er ákvörðunin tekin í sameiningu.
Samstarfið undir nafninu Jakobínarína hófst í desember 2004 og endar nú í mars 2008. Á þessu tímabili höfum við gefið út eina breiðskífu, The First Crusade, eina EP plötu og tvær smáskífur. Undanfarin tvö ár höfum við haft annan fótinn í Bretlandi ýmist við tónleikahald eða upptökur en einnig höfum ferðast til Austurstrandar Bandaríkjanna, Texas fylkis og Evrópulandanna þar sem breiðskífa okkar hefur verið gefin út.
Eins og allir vita vorum við kornungir þegar við vöktum fyrst athygli á Músíktilraunum og síðar á Iceland Airwaves. Síðan þá hafa hljómsveitarmeðlimir auðvitað þroskast mikið og hafa skoðanir til tónlistarsköpunar breyst til muna. Í byrjun starfaði hljómsveitin í þeim tilgangi að njóta upplifuninnar við að vera í hljómsveit og semja tónlist. Undanfarin misseri hefur þessi tilfinning horfið, áhugaleysi á efninu okkar hefur gert vart við sig og leiði á öllum þeim kvillum sem hinn alþjóðlegi tónlistarbransi ber í skauti sér. Við viljum endurvekja þessa gleði sem einkenndi sköpunina og flutninginn í fyrstu hjá okkur en við getum ekki séð að það geti gerst í Jakobínurínu batteríinu. Maður þarf að rífa niður til að geta endurreist og það á vel við í okkar tilviki. Flestir okkar ætla að mennta sig næstu árin en verða samt sem áður viðloðandi við tónlistarsköpun.
Þessi ár hafa verið okkur mikið ævintýri, við höfum séð heiminn og kynnst fjölda fólks. Við fórum mun lengra en okkur nokkru sinni óraði fyrir og skiljum eftir okkur breiðskífu sem við erum allir mjög ánægðir með. Það sem mikilvægast er að vinátta okkar hefur bara styrkst við þessa miklu rússíbanaferð og þó fólk vilji nú alltaf trúa öðru þá skiljum við í mesta bróðerni.
Við ætlum að kveðja fólkið sem hefur stutt við bakið á okkur með lokatónleikum í Reykjavík. Nánari upplýsingar munu koma fram síðar. Áður en það gerist förum við á tónleikarferðalag um Þýskaland sem stendur frá 17. til 24. febrúar. Við þökkum öllum þeim aðilum sem hafa hjálpað okkur á einn veg eða annan. Vonandi sjáumst við öll á lokatónleikunum.

Kveðja

Jakobínarína
twisted boy under crimson skies
Brian Vasey

 
Gosh, I wish I spoke or read or understood Icelandic!

Takk Fyrir!
 
Posted by twisted boy under crimson skies on Wednesday, February 06, 2008 - 12:48 AM
[Reply to this
bergrún

 
Gott hjá ykkur. Ég er samt smá leið. :)
Ég náði nú aldrei að sjá ykkur á tónleikum, en diskurinn ykkar er frábær.
Vonandi gengur ykkur allt í haginn í framtíðinni.
 
Posted by bergrún on Wednesday, February 06, 2008 - 12:22 PM
[Reply to this
haffi
Hafsteinn Bergmann

 
i am still going to kill myself

;(
 
Posted by haffi on Wednesday, February 06, 2008 - 3:28 PM
[Reply to this
OCTOBRE ROCK 2009

 
"Fais chier!!!" like we say in France. I've heard that the story of the band was over. I don't understand icelandic but I think that your "Fréttir" is about it.
Thanks for all and see you for new adventures.

Jerome
 
Posted by OCTOBRE ROCK 2009 on Wednesday, February 06, 2008 - 8:44 PM
[Reply to this
Hajni

 
hehe tökjó hogy nem tudom elolvasni, de Ti sem....:D


good but i cant speak/read in Islandese.....:D
 
Posted by Hajni on Wednesday, February 06, 2008 - 9:22 PM
[Reply to this
Hulda

 
Gott hjá ykkur. Það er að segja að gera það sem ykkur langar.
Vonandi sér maður samt nýtt efni frá ykkur sem fyrst. Endilega láta vita með þessa lokatónleika, ég fékk aldrei að sjá ykkur live ;)
 
Posted by Hulda on Thursday, February 07, 2008 - 9:53 PM
[Reply to this
Doddi

 
Þetta er greinilega gert að vel ígrunduðu máli og þó svo ég verði að viðurkenna að ég sé pínu svekktur að heyra þessar fréttir þá skil ég nú afstöðu ykkar ansi vel. Gangi ykkur vel og takk fyrir tónlistina.
 
Posted by Doddi on Tuesday, February 12, 2008 - 8:16 PM
[Reply to this
Jagga <3
Jakobína Rós Björgólfsdóttir

 
neeei .. þið megið ekki hætta :( á ennþá eftir að sjá tónleika með ykkur ..
Hvenar verða síðustu tónleikar á íslandi?? ég hreinlega VERÐ að sjá ykkur sko .. !
Enda flottasta hljómsveitin með flottasta nafnið :D ;)
 
Posted by Jagga <3 on Thursday, February 14, 2008 - 1:29 PM
[Reply to this
Ívar Glói
Ívar Gunnarsson

 
GAURAR!!! Hvað eruði að pæla?!?! :o

Ps. Gunnar, þekkirðu Brynjar?!?!?! Hann var með þér í náttúrufræði, hann er sko besti vinur minn
 
Posted by Ívar Glói on Monday, February 18, 2008 - 8:21 PM
[Reply to this
Alice

 
I cant read icelandic but I guess this says youre splitting-up from the comments... can't tell you how sad I am to hear that! You guys are/were an amazing band, and that weekend in Paris for the magazine was so fun.
If you get the chance you really should come to London for one last gig, (if you're over here I'll even orginise it for you!) you know you want to!

love,
Alice

PS. "let us si-i-i-ing, for one la-a-ast time"!!!!!!
 
Posted by Alice on Thursday, February 21, 2008 - 10:55 PM
[Reply to this
Mike Wynn

 
Can someone PLEASE give us the gist of this in English?

They better bloody not be splitting up. Cracking band.


:o(
 
Posted by Mike Wynn on Tuesday, March 04, 2008 - 7:16 PM
[Reply to this
Lore
Lore G

 
can somebody translate this?

don't split up!!!
 
Posted by Lore on Tuesday, March 11, 2008 - 9:54 PM
[Reply to this
Fonetico

 
Takk fyrir strákar...
 
Posted by Fonetico on Thursday, March 13, 2008 - 8:35 AM
[Reply to this
Azzy/
Aaron Lewins

 
http://www.icelandreview.com/icelandreview/daily_news/?cat_id=40764&ew_0_a_id=300324
 
Posted by Azzy/ on Saturday, March 15, 2008 - 10:09 AM
[Reply to this
Sólvör
Salladin Sane

 
Töffarar!

Það eru ekki allir sem hafa svo sterkt bein í nefinu til að vita nákvæmlega hvað hentar þeim á hvaða tíma og mér finnst lýsa hugrekki að hafa kjarkinn til að sækjast eftir því (allveg eins og þið höfðuð kjark til að sjá hvert Jakobínarína myndi leiða ykkur...).

Kanski má segja að þið séuð á barmi heimsfrægðar, á toppnum, að meika það...en hvað sem því líður vil ég bara votta virðingu mína fyrir Jakobínurínu sem hefur vafalaust veitt mörgum hlustendum og hljómsveitum innblástur.

Skemmtið ykkur vel í menntaskóla/eða hvað sem ætlið að gera og hlakka til að fylgjast með tónlistarsköpun ykkar í framtíðinni.

Pís
 
Posted by Sólvör on Sunday, March 16, 2008 - 4:24 PM
[Reply to this
Amanda Mist
Amanda Sigurdardottir

 
Sad /;
- En lika flot hjá ekkur ad gera pad sem pid vill!
en samt elska ég musik hjá ekkur!, og er lika buin ad köba geisladiskin :D
- Elska ekkur ad eilifu xD

Og gangid vel i framtiduna :D
 
Posted by Amanda Mist on Saturday, May 03, 2008 - 5:31 PM
[Reply to this