MySpace
myspace music


Ramses



Last Updated: 10/26/2009

Send Message
Instant Message
Email to a Friend
Subscribe

Status: Single
City: Kópavogur
Country: IS
Signup Date: 11/16/2005
Thursday, April 09, 2009 
Ramses- Riddari Götunnar ásamt Katrínu
Producerað af BRR og Ramses
Mixað af Ramses
af plötunni Óskabarn Þjóðarinnar


Ég tók upp svona 3-4 útgáfur af þessu lagi og loksins náði ég að gera útgáfu sem ég var virkilega sáttur með. Fékk söngkonuna Katrínu til þess að gefa laginu algjörlega hinn rétta fíling. BRR gerði grunn beatið en ég bætti hann og þétti og algjörlega mixaði upp á nýtt.

Þetta lag á rætur sínar að rekja til ársins 2007. Ég var þá í Kaupmannahöfn og gisti í íbúð sem var við Istegade. Istegade er nú þekkt fyrir að vera óreglu gata í Kaupmannahöfn en þó eitthvað hefur verið tekið til þar er þetta ennþá frekar vafasöm gata.
Þessa viku sem ég gekk nokkrum sinnum á dag upp og niður þessa götu sá maður ýmislegt sem maður er ekki vanur að sjá út á götum í íslenskum veruleika. Menn sátu fyrir framan kirkjuna í götunni dauðir áfengisdauða eða voru hreinlega að sprauta sig. Þar sem ég hef aldrei þekkt þennan veruleika fékk ég hugmyndina af laginu þarna. Sá heimilislausa menn ráfa um götunnar. Mér fannst hugmyndin um riddara götunnar vera alveg kjörin til að tala um mann sem að hefur lent í þessum aðstæðum.

Vona að þið hafið gaman af þessu lagi sem er af væntanlegri plötu minni... Óskabarn Þjóðarinnar!!!



Previous Post: Tjékkaðu Freshið | Back to Blog List | Next Post: Hjartlaust skrímsli