Loksins loksins!
Ég vill þakka öllum þeim sem hafa stutt okkur í gegnum þetta skemmtilega verkefni.
Takk þið eruð öll æði!
Platan kom s.s út fyrir viku síðan, fékk 4.stjörnur í fréttablaðinu og er orðin 7unda söluhæsta platan í skífunni.
Endilega (þeir sem hafa áhuga ) fara í skífuna og versla áður en að Bubbi og Sigurrós og fleiri góðar kanónur taka af okkur sessinn:) JEI!
Kveðja: Bjössi.
ps: Læt fylgja fréttatilkynningu um okkur svona uppá stuðið!
Múgsefjun slær ferskan tón á sinni fyrstu plötu: snjallar útsetningar byggðar á óhemju flottum röddunum og óvæntum taktbreytingum þar sem harmónikkan svífur um á milli hefðbundinna hljóðfæra. Heilt yfir er hér um að ræða hlaðborð af ólíkum tónlistarstílum, tvinnað saman af lyst og list. Ljúfar melódíur ráða ferðinni og yrkisefnin eru af ýmsum toga, þ. á m. skiptar skoðanir Íslendinga á virkjanaframkvæmdum, lífið í Unuhúsi og neðansjávarvændiskonur.
Platan var tekin upp í gömlum lýsistanki á Flateyri, fyrir utan glaðværan orgelóm sem var fenginn í Ísafjarðarkirkju og nokkra píanótóna sem komu úr mötuneyti Kambs á Flateyri. Úr hinu hversdagslega finnur Múgsefjun brot og raðar saman í bjarta og nýstárlega mósaíkmynd. Hér er mótuð framtíðarsýn, þetta er uppskrift af því sem er hægt að gera með dægurtónlist. Gítar, trommur, nikka og bassi bræða saman ómótstæðilega heild í gæðalögum eins og „Lauslát" og „Kalin slóð" en ofan á flýtur flauelsmjúk röddin í Hjalta söngvara.
Á fjórum árum hefur Múgsefjun stækkað frá því að vera kaffihúsatríó yfir í fimm manna band sem keyrir á pottþéttu samspili á flóknum línum. Hvert leiðin liggur héðan er ómögulegt að vita. Það sem koma skal kemur þegar það kemur. Hins vegar eru Skiptar skoðanir metnaðarfull tilraunaplata, ný vídd, ógleymanleg stemning, þúsundþjala-kabarett, varða á þroskaleið íslenskrar tónlistar og málið er dautt. Engar deildar meiningar um það.