 |
Royal Family - Divorce hefur hlotið afbragðs dóma gagnrýnenda og hér er einn:
Laugardaginn 5. janúar, 2008 - Tónlist TÓNLIST - Geisladiskur Framúrskarandi hressileiki í tilveruna Stórsveit Nix Noltes Royal Family-Divorce ****-
Stórsveit Nix Noltes leikur ærslafulla og um leið óhefðbundna þjóðlagatónlist sem á rætur sínar að rekja til Austur-Evrópu, nánar tiltekið Búlgaríu. Stórsveitin er í stöðugri þróun.
Stórsveit Nix Noltes leikur ærslafulla og um leið óhefðbundna þjóðlagatónlist sem á rætur sínar að rekja til Austur-Evrópu, nánar tiltekið Búlgaríu. Stórsveitin er í stöðugri þróun. Á síðustu plötu sinni, Orkídeur Hawaí, spiluðu þau níu saman í sveitinni en ellefu koma að hljóðritun Royal Family-Divorce. Ólöf Arnalds, sem lék á fiðlu á fyrstu skífunni, spilar ekki með vegna anna og í hennar stað er komin Kristín Þóra Haraldsdóttir. Einnig hafa tveir blástursleikarar bæst í hópinn; Eiríkur Orri Ólafsson og Ingi Garðar Erlendsson. Fyrsta platan var feiknagóð en þessi gefur henni ekkert eftir nema síður sé – þvílíkur er krafturinn og spilagleðin. Stórsveit Nix Noltes er skipuð framúrskarandi músíköntum sem hafa tónlistina í blóðinu, frumkrafturinn er óbeislaður og útkoman er hressandi danstónlist – það er hreinlega ekki hægt að sitja kyrr og hlusta á diskinn. Hljóðvinnsla Ólafs Bjarna Ólafssonar og Orra Jónssonar (úr Slowblow) er einkar fín í hráleika sínum og hæfir umgjörðinni algjörlega.
Royal Family-Divorce er skemmtileg plata og inniheldur frábærar útsetningar af búlgörskum þjóðlögum. Lögin tíu sem hana prýða eru litrík, fjölbreytt og greinilegt að miklar pælingar hafa átt sér stað hjá Nix Nolte-liðum við að gera þennan bræðing svo áheyrilegan sem hann er án þess að missa þráðinn í mesta stuðinu. Trommusláttur Ólafs er ævintýralegur og það má vissulega segja að það sé hann sem stýri sveitinni í höfn í hverju laginu á fætur öðru – hrynfesta hans er með ólíkindum. Aukinn þáttur blásturshljóðfæra veita lögunum góða fyllingu í samspili við strengi og rafgítarleik. Sem dæmi um nýja strauma má segja að inni í sum lögin læðist sannkölluð sýru- og skynvillustemning en í öðrum jaðrar við að sveitin sé komin í þungarokkið; lögin „Elenska Rachenitsa" og „Winding Horo" eru góð dæmi um þetta þar sem þrír gítarleikarar sveitarinnar fara á kostum.
Stórsveit Nix Noltes hefur tekist hér í annað sinn að senda frá sér gæðaskífu sem gaman er að hlusta á heima í stofu en ég verð þó að taka það fram að það jafnast engan veginn á við það að sjá sveitina spila á tónleikum – það er bara geggjað!
Jóhann Ágúst Jóhannsson
6:17 PM
Powered by  | | English | | Albanian | | Arabic | | Bulgarian | | Catalan | | Chinese | | Croatian | | Czech | | Danish | | Dutch | | Estonian | | Filipino | | Finnish | | French | | Galician | | German | | Greek | | Hebrew | | Hindi | | Hungarian | | Indonesian | | Italian | | Japanese | | Korean | | Latvian | | Lithuanian | | Maltese | | Norwegian | | Polish | | Portuguese | | Romanian | | Russian | | Serbian | | Slovak | | Slovenian | | Spanish | | Swedish | | Thai | | Turkish | | Ukrainian | | Vietnamese |
|