MySpace


Sigurjón



Last Updated: 11/21/2009

Send Message
Instant Message
Email to a Friend
Subscribe

Gender: Male
Status: Single
Age: 30
Sign: Scorpio

Country: IS
Signup Date: 4/2/2006
Wednesday, December 27, 2006 

Current mood:  thankful

Var áð hlusta á The Jam í fyrsta skiptið áðan. The jam er ekki skemmtileg hljómsveit!! Verð alltaf pirraður þegar mér finnst bönd "sem eiga að vera góð" eru það svo ekki.

Fleiri ofmetnar hljómsveitir:
Rolling stones
Mezzoforte
Belle and sebastian
Coco rosie
Prince

-----------------------------------------------------------------------

Var í jólaboði í dag.

Hún Ósk mín bauð mér í jólaboð hjá fjölskyldunni sinni í dag.
Ein mín mesta gæfa í lífinu var að kynnast Ósk. Eins og það sé ekki nóg þá hún einhverja þá allbestu fjölskyldu sem til er, og frá fyrsta degi hef ég alltaf verið velkomin í hana. Það eru forréttindi sem engu verður við jafnað.

---------------------------------------------------------------------------

Byrgið

Hef verið að fylgjast með "byrgismálinu" undanfarið (eins og margir aðrir).
Ekki alla ég að tjá mig um sekt eða sakleysi Guðmundar. Né heldur um réttmæti þess að birta þessa frétt og efnistök hennar, sem af einhverjum ástæðum er orðið aðalatriði þessa harmleiks.
Hins vegar....
Er það virkilega staðreynd, eins og mér sýnist, að hver sem er geti stofnað meðferðarstofnun fyrir fíkla og alkahólista? Og það sem meira er... fengið fjármagn úr opinberum sjóðum til rekstursins. Mér virðist að það sé t.d. engin hindrun fyrir mig að hefja mína eiginn meðferðarstofnun ef mér svo sýnist!!!
Getur verið að eðli sjúkdómsins, eða öllu heldur birtingarform hans, hafi þarna eithvað að segja?
Mér segir svo hugur að meðferðarstofnanir fyrir einhverja aðra sjúkdóma s.s. alnæmi, berkla, þunglyndi, átröskun.... (svo ég nefni eitthvað) fengi ekki sömu fyrirgreiðslu.

---------------------------------------------------------------------------

Að lokum vil ég óska öllu því góða fólki sem þetta les gleðilegra jóla og farsæls komandi árs

Góðar stundir 

Previous Post: spjall við halla á msn | Back to Blog List | Next Post: Fánar feðrana