MySpace

Eitlamessa og taugatælutal Hér mætist hinn stafræni vefur og lífrænir vefir einstaklinganna

Davíð Alexander



Last Updated: 5/10/2009

Send Message
Instant Message
Email to a Friend
Subscribe

Gender: Male
Status: Single
Age: 25
Sign: Leo

Country: IS
Signup Date: 4/15/2006

My Subscriptions
June 19, 2007 - Tuesday 
Þið vitið, ljótt vörumerki.

ES: Utan úr óravíddum geimsins berst í sífellu til jarðarinnar svokölluð geimgeislun (e. cosmic rays, þó ekki sé um eiginlega geisla að ræða). Hún samanstendur aðalega af róteindum (90%) í bland við nokkra helíum kjarna (9%) og svo slæðing af rafeindum (nema hvað, 1%). Þessu rignir inn á jörðinni úr öllum áttum, lang mestu frá sólinni, en einnig má greina geislun sem berst mun lengra að. Ofvaxnir atburðir utan sólkerfisins (utan vetrarbrautarinnar líka) ná þannig að senda nokkrar eindir til okkar yfir gríðarlegar vegalengdir, svo miklar að efnið hefur verið þúsundir ára og gott betur á leiðinni til okkar.

Flestar þeirra nema hér staðar afskiptar og einar án þess að nokkur veiti því athygli, en örfáar ljónheppnar öreindir berast fyrir augu (tja, mælitæki) vísindamanna sem skrá orku geislunarinnar niður. Orkan felst þá í hraða eindanna og að jafnaði er sú orka (eða sá hraði) sérlega lítilfjörlegur.

Árið 1992 námu mælitækin þeirra hinsvegar eind, líklega staka róteind, sem flutti með sér 50 Joule af orku. 50 joule eru víst svipuð orka og 140 gramma hafnabolti á tæplega 100 kílómetra hraða á klukkustund býr yfir. Sumsé ekkert stórkostleg orka í algildum skilningi. En róteind er miklu minni en hafnabolti. Hún er í rauninni það mikið smærri að til þess að flytja sín 50 joule hefur hún þurft að vera hérumbil á ljóshraða. Til að senda efni, eitthvað með massa, á hérumbil ljóshraða, þarftu svo fáránlega orku að vísindamennirnir, sem stóðu við mælitækin áðurnefnd, göptu bara, orðlausir þegar kom að útskýringum. Nú, 15 staðfestum "ofureindum" (á ensku er þær kallaðar Oh-my-god-particles) síðar, gapa þeir enn.

EES: Besti vinur minn, svokallaður, vill ekki spila tónlist í sérlega síðbúnu stúdentsveislunni minni þó fjölskyldan sé tilbúinn til að flytja hann sérstaklega inn sem skemmtiatriði. Fítonsleim ekki satt?
Áa

 
Haha nú skaltu sko ímynda thér hann pabba minn gapandi yfir geimgeislataekjunum sínum í París á sjounda áratugnum. Hefur ábyggilega verid fonní. Thad litla sem ég veit reyndar um tíma hans hjá geimvísindastofnuninni er thad ad í kaffeteríunni var selt mjog ódýrt raudvín í kvartlítersfernum og pabbi keypti tvaer á hverjum degi og fór med heim til mommu til ad hafa med kvoldmatnum. Thá gerdi ég mér grein fyrir tví ad jafnvel geimgeislafraedingar thurfa stundum ad lifa stúdentaskrimtulífi. Afsakadu ordárásina. Ég kved.
 
Posted by Áa on June 24, 2007 - Sunday - 5:09
[Reply to this
Dísa

 
Leimbjörn
 
Posted by Dísa on June 25, 2007 - Monday - 21:57
[Reply to this
Elías

 
Fyrir nokkrum árum síðan fundust tveir skrýtnir jarðskjálftar á mælum. Besta skýringin sem hefur fundist á þessum skjálftum var að loftsteinn á stærð við baun hafi farið í gegnum jörðina á rétt rúmlega einni sekúndu ...

Varðandi lógó, þá er best að þau séu kringlótt, því þá er hægt að mála þau á tunglið.
 
Posted by Elías on July 10, 2007 - Tuesday - 19:53
[Reply to this