 |
Current mood:  awake
Og þarna var ég út í geimnum, með nýja pianet-ið mitt og það virkaði fyrir utan 4-5 hæstu nóturnar og mér leið bara þokkalega með það. Ég komst að því að þær voru bilaðir, eða réttara sagt engir pick-up-ar fyrir þær, hélt það væri nú séns að laga það. En þarna var ég út í geim, og var á einhverju sem gæti hafa verið sundlauga bolti sem ég sveif á en mér líkaði það ekkert, enda var svo komið fyrir mér að ég var umlukin engu, nema það voru allskonar lita myndanir og það er eins og mig minni að ég hafi verið að reyna að taka myndir af því. Ég hafði töluverðar áhyggjur af þessari reiðinnar býsn af engu sem umlukti mig og var mest hræddur um að detta út í þennan geim fullan af engu og í framhaldi af því verða að engu, enda hefur sundlauga bolti ekki ennþá talist heppilegur ferðamáti. Þetta var sennilega ekki alls ótengt ótta mínum við flug en þá einmitt svífur maður á engu, nema hvað að þá svífur maður í margra tonna ferlíki á engu, sem getur bara ekki verið heillavænlegt. Nema hvað að það eru bara heilu hóparnir af fólki sem álitur þetta bara vera nokkuð skynsamlegt, það að fara rosalega hátt upp, í rosalega þungu ferlíki og eyða fleiri klukkutímum ofan á engu, og það sem meira er í flestum tilvikum gengur það upp, meirað segja vill fólk meina að þetta sé öruggari dægrastytting en sú að aka bíl. Mér skylst að galdurinn við að fljúga sé að látta sig falla og hitta ekki jörðina, en þetta er víst ekki hægt að framkvæma nema með því að á því augnabliki sem maður er að fara að hitta jörðina þá verði eitthvað að draga athygli manns frá því að maður sé einmitt að falla, á ógnvænlega miklum hraða, á jörðina, og mér skylst líka að maður eigi ekki að veifa neinum. Næst þegar ég fer í flugvél ætla ég að haga ferðinni þannig að ég geti með einhverjum móti dregið athygli mína frá því að ég sé í flugvél og hafa hendur í vösum.
7:33 PM
Powered by  | | English | | Albanian | | Arabic | | Bulgarian | | Catalan | | Chinese | | Croatian | | Czech | | Danish | | Dutch | | Estonian | | Filipino | | Finnish | | French | | Galician | | German | | Greek | | Hebrew | | Hindi | | Hungarian | | Indonesian | | Italian | | Japanese | | Korean | | Latvian | | Lithuanian | | Maltese | | Norwegian | | Polish | | Portuguese | | Romanian | | Russian | | Serbian | | Slovak | | Slovenian | | Spanish | | Swedish | | Thai | | Turkish | | Ukrainian | | Vietnamese |
|