MySpace
myspace music


Fortuna



Last Updated: 7/15/2009

Send Message
Instant Message
Email to a Friend
Subscribe

Status: Single
City: Hafnarfjörður
Country: IS
Signup Date: 5/21/2006
Sunday, April 08, 2007 

Category: Music

Síðustu vikur og mánuðir hafa verið frekar afdrifalausir hjá Fortuna. Við erum allir búnir að vera uppteknir í skóla og vinnu og höfum þar af leiðandi æft lítið og spilað sama og ekkert.

Í dag tók ég þá ákvörðun að yfirgefa Fortuna, allavega tímabundið og mjög líklega til langframa. Vegna tímaleysis sökum skóla og vinnu og persónulegra ástæðna hef ég hvorki löngun til, né sé mér fært að vera hluti af Fortuna lengur. Þessvegna tel ég best að Fortuna haldi áfram án mín.

Það hafa enn ekki verið teknar neinar ákvarðanir varðandi það hvort ég mun taka þátt í upptökum á nýjasta efni Fortuna eða hvort ég kem fram með Fortuna á Eistnaflugi í sumar, en eflaust kemur það í ljós á næstu dögum/vikum.

Ég vill ljúka þessu á að þakka öllum þeim sem að hafa mætt á tónleikana okkar, þeim sem að styrktu okkur með því að kaupa demóið okkar og öllum þeim sem að hafa sýnt bandinu áhuga.

Kveðja
-Gunnar Cortes / Fortuna

------------------------------

The last few weeks have been rather slow for Fortuna. We've all been busy at school and work and therefor we haven't rehersed much and not played at all.

Today I decided to leave Fortuna, at least for the time being and probably for good. For the lack of time because of work and school and because of personal reasons I don't have the will nor the enthusiasm to be a part of Fortuna anymore. Therefor I assume it's for the best that Fortuna continues without me.

There have been made no decisions whether I will participate in the recording of Fortunas newest material or whether I will perform at "Eistnaflug" this summer, but it will be announced in the next few days.

Lastly, I want to thank everyone who have been to our shows, those who bought our Demo CD and everyone who has shown interests in Fortuna.

Best wishes!
-Gunnar Cortes / Fortuna



 
tad var leitt ad heyra :( en svona er tad nu stundum, hlutirnir ganga ekki alltaf upp eins og madur vildi oska ad teir gerdu... en oska ter gods gengis i skolanum og vona bara ad tu tekur saman med teim aftur fljotlega ;) hver veit.... hafdu tad sem allra best svo lengi :)

Kvedja Gunnsa
 
Posted by on Sunday, April 08, 2007 - 2:17 PM
[Reply to this
Elín Kristjáns เอลิน

 
"Síðustu vikur og mánuðir hafa verið frekar afdrifalausir hjá Fortuna. Við erum allir búnir að vera uppteknir í skóla og vinnu og höfum þar af leiðandi æft lítið og spilað sama og ekkert."

Heyrðu Gunnar, talaðu fyrir sjálfan þig. Það er alveg greinilegt að sumir leggja meira á sig en aðrir fyrir þessa hljómsveit og þá er ég að tala um Adda, Rút og Krissa. Krissi og Rútur eru alltaf annað slagið að semja og það hefur verið haldið æfingar þar þú hefur ekki látið sjá þig. Ef þú ert að koma með eitthvað uppsagnarblogg þá ættiru að tala um þín eigin vandamál en ekki segja að vandamálið sé hjá öllum hinum í hljómsveitinni líka og hljómsveitin er að leita að nýju nafni núna og ætlar að gera eitthvað nýtt svo þú ert ekkert í pásu.. hjá þér verður ekkert aftur snúið... því miður þá ertu alls enginn hluti af þessu bandi, hvorki til langframa né einhverntíman eftir nokkra mánuði.

kveðja, Elín kærastan hans Rúts (Sem er EKKI sátt með orðalagið þitt!)
 
Posted by Elín Kristjáns เอลิน on Tuesday, April 10, 2007 - 3:53 PM
[Reply to this
xGnarRx

 
haha :D Afhverju ert þú bitur útaf þessu?

Það er nú bara hreinn og beinn sannleikur að Fortuna er ekki búin að vera að æfa mikið síðustu vikur/mánuði og ekki búnir að spila síðan í Febrúar. Ég var ekkert að segja að það væru vandamál hjá hinum í hljómsveitinni, heldur að vandamálið væri að ég hefði ekki áhuga á að vera í hljómsveitinni. Og nei, ég hef engann áhuga á að koma aftur í þetta band. Þetta var engin pása af mínu sjónarmiði.

Ég hef líka alltaf sagt það og segi það enn að Fortuna (eða undir hvaða nafni sem hljómsveitin verður í framtíðinni) á eftir að verða stórt band og gera mjög góða hluti. En þetta er ekki eitthvað sem ég hef áhuga á að taka þátt í.

Mér þykir líka leiðinlegt að sjá þig vera að reyna að stofna til einhvers rifrildis á netinu. Ég þekki þig nú í persónu og þykir þú vera fínasta stelpa :) Svo endilega komdu og spjallaðu við mig á msn eða hringdu ef þú vilt tala meira við mig.

Kv.
-Gunnar
 
Posted by xGnarRx on Friday, April 13, 2007 - 1:21 AM
[Reply to this