MySpace
myspace music


Benny Crespo's Gang



Last Updated: 8/12/2009

Send Message
Instant Message
Email to a Friend
Subscribe

Status: Single
City: Reykjavik
State: Iceland
Country: IS
Signup Date: 1/26/2005
Monday, March 31, 2008 

Current mood:  rockin
7 tónleikastaðir og Guitar Hero III keppnir í framhaldsskólum!

Þann 1. apríl hefst stærsta tónleikaferðalag ársins um landið þegar þrjár af vinsælustu rokkhljómsveitum Íslands í dag munu halda tónleika víðsvegar um landið á vegum Rásar 2 og tímaritsins Monitor. Þetta er þriðja árið í röð sem Rás 2 stendur fyrir tónleikaferð um landið en í ár sameinast kraftar Rásar 2 og Monitor og úr verður stærsta tónleikaferðin til þessa.
Helsti tilgangur ferðarinnar er að gefa tónlistaráhugafólki á landsbyggðinni tækifæri til að sjá og heyra fremsta tónlistarfólk landsins af yngri kynslóðinni í heimabyggð og fyrir lítið fé en Dr. Spock, Benny Crespos Gang og Sign ætla að rokka á Selfossi, Vestmannaeyjum, Höfn í Hornafirði, Eskifirði, Akureyri, Reykjanesbæ og í Reykjavík.
Rás 2 og Monitor munu fylgjast vel með því sem fram fer og kemur uppá meðan á ferðinni stendur. Rás 2 heyrir reglulega í hljómsveitarmeðlimum ásamt því að leika lög þeirra og Monitor mun birta Vídeóblogg eftir hvert kvöld á vefsíðu sinni Monitor.is, ásamt því að fjalla ítarlega um alla tónleikana.

TÓNLEIKADAGSKRÁIN
1. apríl, Fjölbrautaskóli Suðurlands (Selfossi), húsið opnar kl. 20:00
2. apríl, Prófasturinn (Vestmannaeyjum), húsið opnar kl. 20:00
3. apríl, Sindrabær (Höfn í Hornafirði), húsið opnar 20:00
4. apríl, Valhöll (Eskifirði), húsið opnar 21:00
5. apríl, Græni hatturinn (Akureyri), húsið opnar 21:00
10. apríl, Paddy’s (Reykjanesbæ), húsið opnar 21:00
11. apríl, Nasa (Reykjavík), húsið opnar 21:00

HLJÓMSVEITIRNAR

Benny Crespo’s Gang
Benny Crespo’s Gang er án efa ein áhugaverðasta hljómsveit landsins um þessar mundir. Fyrsta plata sveitarinnar kom út undir lok síðasta árs en eftir henna hafði verið beðið með mikilli eftirvæntingu í rokkheimum hér á landi. Benny Crespo’s Gang er rómað tónleikaband og "gítarkennd, hljóðgerfluð, popp, metal kássa" er setning sem kann að koma upp í hugann þegar tónlist sveitarinnar ber á góma. Magnús, Lovísa (Lay Low), Helgi og Bassi skipa eina af björtustu vonum íslenska rokksins um þessar mundir en skemmst er að minnast þess að Lay Low plokkaði hringinn með Rás 2 í fyrra ásamt Pétri Ben og Ólöfu Arnalds.
www.myspace.com/bennycresposgang

Dr. Spock
Hljómsveitin Dr. Spock hefur átt góðu gengi að fagna eftir frábæra frammistöðu í Söngvakeppni Sjónvarpsins þar sem hljómsveitarmeðlimir fluttu lag Dr. Gunna, Hvar ertu nú? Sveitin vakti mikla athygli fyrir skemmtilega og kröftuga sviðsframkomu en það eru ein 15 ár síðan bandið var stofnað og því ljóst að hér fer ein af reyndari rokksveitum Íslands í dag. Gulir gúmmíhanskar verða örugglega með í för og það er hægt að lofa því að þar sem Dr. Spock kemur við er von á brjáluðu partýi.
www.myspace.com/doctorspock

Sign
Sjálfir lýsa þeir tónlist sinni sem melódísku töffararokki af guðs náð með öllu tilheyrandi. Nýjasta plata sveitarinar "The Hope", sem kom út fyrir síðustu jól, fellur algjörlega í þann jarðveg og í plötudómi tímaritsins Monitor skrifaði gagnrýnandi "...að mi´nu mati fyrsta rokkplatan sem stendur jafnfætis þvi´ besta sem gerist annarsstaðar i´ heiminum ..." (4.tbl. des 07). Sign hafa verið kallaðir villtustu rokkarar landsins, með bræðurna Ragnar Zolberg og Egill Rafnsson i´ fararbroddi, en Arnar Gre´tarsson skiptir hetjusólóunum bróðurlega með Zolberg, auk þess að hafa verið valinn rokkari landsins hjá DV eigi alls fyrir löngu. Hljómsveitin Sign er líklega eitt duglegasta tónleikaband Íslands og hafa piltarnir m.a. haldið yfir 80 tónleika erlendis og enn fleiri á Íslandi á síðustu tveimur árum.
www.sign.is
www.myspace.com/sign


KEPPNI Í GUITAR HERO III
Komið verður við í framhaldsskólum sveitarfélaganna á tónleikadögum þar sem sett verður upp keppni í Guitar Hero III tölvuleiknum á PlayStation 3, en leikurinn hefur notið gríðarlegra vinsælda á Íslandi undanfarin ár og dæmi eru um að fjölmargir ungir aðdáendur leiksins hafi smitast svo rækilega af rokkbakteríunni að ekki hafi verið aftur snúið, þar sem næsta skref hefur verið alvöru gítar og innritun í tónlistarskóla.

Nánari upplýsingar á www.ruv.is/poppland
Currently listening:
For Those About to Rock We Salute You
By AC/DC
Release date: 29 April, 2003