MySpace


Ranimosk



Last Updated: 9/24/2008

Send Message
Instant Message
Email to a Friend
Subscribe

Gender: Female
Status: Swinger
Age: 37
Sign: Leo

Country: IS
Signup Date: 11/6/2007

Blog Archive
[Older      Newer]
 /  / 
Wednesday, March 26, 2008 

Category: Fashion, Style, Shopping

Kæru vinir okkar og aðdáendur ÓSÓMA sem lokaði verslun sinni á Laugaveginum fyrir skemmstu.  Við viljum gleðja ykkur með því að nú er hægt að fá valdar Ósóma vörur í Ranimosk.  Vonum að það verði áfram, svo fyrir Ósóma aðdáendur, látið orðið berast.

Dear friends and fans of the lable and store ÓSÓMA which  resently closed up their store on Laugavegur (for now at least), we are happy to anounce to you that Ranimosk will be selling a bunch of Ósóma products. So please spread the word.

Wednesday, December 26, 2007 
 
Monday, December 17, 2007 

Current mood:  blissful

Þá er hann kominn aftur hóstandi lungna öskubakkinn okkar og nú eru líka að hrynja inn nýjar vörur daglega eins og segir í laginu.

Seinnipartinn á morgun verður til dæmis hægt að eignast sólskyn í krukku og tunglskyn í krukku. (Sun in a jar/Moon in a jar) auk fleiri kynjahluta.

Sjáumst á röltinu með sól í hjarta og rokið í fangið, ást í poka sem ekki má loka!

Ranimosk.

Sunday, December 16, 2007 
Sunday, December 09, 2007 

Current mood:  confident
Category: Fashion, Style, Shopping

Uhh, oughhh, ughhhh!

Jæja gott fólk, þá er hóstandi lungnaöskubakkinn sívinsæli bara búinn í bili.  Við fáum hann þó aftur fyrir jól, vonandi bara í næstu viku.

Þeir sem vilja senda kærleiksríkar sneiðar í jólapakka ættu því ekki að örvænta.

Hugsum um heilsuna

Ást og kossar frá Ranimosk lungunum. M

Sunday, December 09, 2007 

Current mood:  cheerful
Category: Fashion, Style, Shopping

Nú eru þeir komnir í hús volgir úr hitapressunni bolirnir hans Sigga,  " BANKANUM ÞÍNUM ER SAMA UM ÞIG"  Næsta mál á dagskrá hjá okkur að dífa okkur í svaðilför í Sænsku stóru hryllingsbúðina í Garðabæ og festa kaup á fleiri herðatrjám.

Ásamt bolunum er Siggi með allskyns bókmentir og Andspyrnurit í sölu hjá okkur og hvet ég ykkur sem hafið áhuga á pólitík til að kíkja inn á bloggið hans á punknurse.helviti.com   og á vefinn hans www.andspyrna.org

En jólin eru að skella á mikið að gera hjá okkur, fara að hellast inn nýjar vörur þessa næstu daga sem eftir eru til jóla.

Ást og kossar frá Ranimosk hjartanu. M

Friday, November 30, 2007 

Current mood:  cheerful
Category: Fashion, Style, Shopping

Jæja þá er aðventan að skella á í Ranimosk.  Það er búið að vera rosalega gaman hjá okkur frá því að við opnuðum aftur.  Núna erum við að undirbúa jólin og erum búin að panta helling af nýju frábæru dóti svo það ætti að vera komið eitthvað nýtt sniðugt og skemmtilegt í hverri viku.

Við erum einnig komin í smá samstarf við aðra aðila en við erum til dæmis að láta prennta fleiri boli "BANKANUM ÞÍNUM ER SAMA UM ÞIG" í samvinnu við andspyrnu/Sigga pönk.  Bolirnir verða komni í hús fljótlega.

Einnig erum við hugsanlega að fara í tónlistarútgáfu í samvinnu við Morrann "The Groke" en líklega verður til geisladiskur með hans frábæru tónlist fyrir jólin.  Skýrist betur á næstu dögum.

The Groke

Það er búið að vera gestkvæmt í búðinni síðasta mánuðinn og við fáum endalaus falleg komment um búðina sem gefur yl í ranimosk hjörtun♥♥

Þá kom Eiríkur nokkur hástemmdur og hraðmæltur að norðan og gerði okkur að miðstöð sinni í Höfuðstaðnum en hann var að gefa út frábæra bók með smásögum og myndskreytingum eftir sjálfan sig.  Það sem er ekki síður merkilegt við þessa bók er að hann áritar hana, númerar og merkir og býður kaupandanum að velja eitt Bítlalag sem hann svo syngur fyrir viðkomandi í íslenskri Eiríksþýðingu á staðnum.  Nota bene Eiríkur er að leyta sér að tjaldi til að hafa á planinu við Hljómalind fyrir jólin þar sem hann hyggst syngja Megas á dönsku og selja sögu Ungmennafélaganna á Íslandi með góðum afslætti.  Nei það er aldrei lognmollan í búðinni okkar. 

Fleiri fréttir seinna.

Ást frá heilögu hjarta smáhlutanna.

M.