MySpace


Sigurjón



Last Updated: 11/21/2009

Send Message
Instant Message
Email to a Friend
Subscribe

Gender: Male
Status: Single
Age: 30
Sign: Scorpio

Country: IS
Signup Date: 4/2/2006

Blog Archive
[Older      Newer]
 /  / 
Thursday, January 11, 2007 
http://blog.central.is/sigurjon15
Verð hér framvegis

Sunday, December 31, 2006 

M.A.G.  Segir:


Sigurjón segir: " Heldur þú Össur að með inngöngu í ESB og upptöku evru að...
Það dragi úr opinberri eyðslu
Að Íslendingar hætti að taka óhagstæð lán til einkaneyslu "

Nei það gerist mun fyrr, eða þegar ný ríkistjórn tekur við.

Ég svaraði

Kæri M.A.G. (Mikið rosalega væri hressandi að menn kæmu nú fram undir fulu nafni hérna)

Þú segir ný ríkisstjórn!!!
Vinstri grænir segja:
Stopp á áframhaldandi einkavæðingu. Hinn almenni kjósandi þeirra vill sennilega "afturábak skref" ríkisvæða landsímann og svo framvegins. og NB hafna algerlega ESB aðild.
SF: segir:
Einkavæðing hmm.... sjáum til hvað skoðanakannair segja...
virkjun? fín meðan hún er heima hjá mér, annars er ég á móti... er það ekki annars, er það ekki örugglega vinsælt?
Frjálslyndir segja:
Á móti kvótakerfinu, hljóta að fá sjávarútvegsráðuneytið (annað væri meiriháttar svik við kjósendur þeirra) afnema kvótakerfið. Loka Íslandi fyrir útlendu verkafólki (sérstaklega sonum Íslams) svo þetta útlenska pakk hætti að kúga okkur hin...

Á ég að halda áfram...
held ekki

verði hin "nýja ríkisstjórn" þín þér að góðu M.A.G:

góðar stundir

Sunday, December 31, 2006 

Einhver sem kallar sig Guðmund M spyr mig...

Sigurjón Njarðarsson,að sjá lík fjölda kúrdískra barna,sem Saddam drap með eiturgasi, í fréttum kvöldsins,svertu hjarta mitt

Mitt svar er hérna...

Kæri Guðmundur M.

Við erum greinilega á sama máli þegar kemur að Inngöngu Íslands í ESB.

En þú ræðst aldeilis á garðinn þar sem hann er lægstur þegar þú talar um dauðarefsingu Saddams!
Ég hef aldrei og mun aldrei reyna að réttlæta glæpi Saddams! aldrei!!!
En það er ekki mitt eða þitt, eða nokkurs annars að ákveða hvort nokkur manneskja lifi eða deyji. Fyrst þú ert nógu óskammfeilinn að ætla að nota saklaus fórnarlömb illmennisinns Saddam til að reyna að stinga ofan í mig. Þá spyr ég...
Hefðir þú kannski (klæddur hettu auðvitað) verið til í að setja snöru um háls hans og taka af lífi?
Góðar stundir

Sunday, December 31, 2006 

Björn Bjarna skrifar á heimasíðu sinni www.bjorn.is

Saddam Hussein einræðisherra í Írak var hengdur í nótt, eftir að hafa verið dæmdur til dauða bæði af undirrétti og áfrýjunarrétti. Samkvæmt mannréttindasáttmála Evrópu er dauðarefsing óheimil og ber Íslandi og öðrum aðildarríkjum sáttmálans að virða það ákvæði. Saddam hefði því aldrei hlotið þessi málagjöld í Evrópu - í Írak eins og mörgum öðrum löndum er unnt að refsa mönnum með aftöku.

Hvað meinar maðurinn?!!!

honum tekst að skrifa 6 línur um´heims stórpólitískt mál án þess að segja neitt!!ég les þetta svona.
Sko! Saddinn dó í nótt, og hérna sko hérna hann sko, sko skiluru hann hefði ekki dáið á íslandi sko. Við nebnilega meigum það ekki sko (mannréttinda dómstóls e-hvað ) En þetta má þarna í Írak sko.

Af hverju segir hann ekki....
Ég sem Íslendingur hafna þessari aftöku af því að hún stríðir gegn allri almennri skynsemi. Með þessari aftöku eru þeir sem dæmdu hann búnir að setja sig á sama stall og hann!

Góðar stundir 

Sunday, December 31, 2006 

Current mood:  enraged

birti í dag athugasemd til Össurs Skarphéðinssonar
Það er hér

Kæri Össur

Mér er með öllu fyrirmunað að átta mig á þessu ESB tali þínu. Ef ég skil skrifin rétt, þá er þingflokksformaður SF og fyrrverandi formaður, að leggja til að Innganga Íslands í ESB sé forgangsverkefni ríkisstjórnar "jafnaðarmanna"
Hvernig þetta er reiknað út bara skilur lítill Tungnamaður ekki!
Slægleg staða krónunar nú um stundir verður bara skýrð með hinni gegndarlausu eyðslu opinbers fés svo og mikilli skuldasöfnun heimila.
Heldur þú Össur að með inngöngu í ESB og upptöku evru að...
Það dragi úr opinberri eyðslu
Að Íslendingar hætti að taka óhagstæð lán til einkaneyslu
Að þín heittelskaða (nú um stundir) S & P gefi Íslandi hærri einkunn

Bendi þér á að kíkja á heimasíðu Ragnar Arnalds ef þú villt fá nánari útlistun á draumagjaldmiðlinum evru.

Vil líka biðla til þín og annarra alþingismanna að fordæma með öllu og harkalega öllu sem tengist dauðarefsingum. Að sjá mann tekinn af lífi í dag svertir hjarta mitt.

góðar stundir

Currently listening:
Samme Stof Som Stof
By Under Byen
Release date: 24 October, 2006
Saturday, December 30, 2006 

Ef eitthvað er að marka netmiðlana á að taka Saddam Hussein af lífi um það leyti sem ég skrifa þetta. Það er ekki rétt. Enginn hefur rétt til að deyða aðra manneskju sama hvað hún er, eða hefur gert.
Ég er fullur andstyggðar á öllu sem Saddam hefur gert....
ég er fullur andstyggðar á öllu sem Saddam stendur fyrir...
ALLIR sem fremja glæpi á við hans eiga að svara fyrir þá...
ég studdi stríðið í Írak... Mikið óskaplega sé ég eftir því

En!!!!!!!!
að taka manneskju af lífi styð ég aldrei

Thursday, December 28, 2006 

Current mood:  tired

Skrapp í bíó í kvöld... fyrir valinu varð myndinn "flags of our fathers" Verð alveg að viðurkenna það væntingar mínar voru takmarkaðar. eeeennnn... svo var hún bara alveg ágætt hreint. Öllum hetju/væmnis/grátur elementum var haldið frá sögunni (eins mikið og hægt er að ætlast til af hollívúd mynd allavega) og var meginþráðurinn um ljótleika stríðs og hvernig ímynd okkar af stríði er afskræmd.
Annar góður punktur í myndinni er að sagan er öll sögð frá einum sjónarhól, þ.e. bandaríkjamanna. Það er nefnilega leiðinda lenska í kvikmyndum af þessu tagi að mála "óvinin", hver sem hann er, sem einhverskonar sálarlausar skepnur sem hugsa bara um að meiða og pynda af mestum móð. Að vísu kemur fram að hermennirnir álíta alla Japanina vera þessar skepnur, en það er alveg ljóst að það er fyrst og fremst vegna innrætingar hersins.

--------------------------------------------------------------------------

Talandi um seinna stríð.
Þá er ég núna að lesa bók um umsátrið um Stalingrad. Ég fullyrði að grimmd stríðs hefur ekki verið betur lýst fyrir mér. Það er með hreinum ólíkindum hvað báðir stríðsaðilar bera litla virðingu fyrir mannslífum.
Gott dæmi:
Eftir misheppnaða atlögu Þjóðverja að Moskvu er hrundið og undanhald þaðan hefst, gefur Stalín fyrirskipun um "sviðna jörð" þ.e. að þýskar herdeildir komi að brunarústum á flóttanum og geti hvergi leitað sér skjóls undan kuldanum, né nokkurs matar. Þetta þýddi að hann hrakti hundruði þúsunda af sínum þegnum út úr húsum sínum, eyðilagði allar matarbirgðir þeirra, drap bústofninn.... með öðrum orðum, myrti bróður part af þessu fólki!!!

-------------------------------------------------------------------------

Alltaf öðru hvoru þegar pólitíkusar hafa lítið til að tala um, hættir þeim til að verða hræddir. Sumir virðast svo gagnteknir af ótta við að fólk gleymi þeim að þeir segja, að manni virðist, hér um bil hvaða vitleysu sem er. Bara til að komast í blöðinn.....
Nýleg dæmi:
Ingibjörg Sólrún: Fólk þorir ekki að treysta samfylkingunni...
Össur Skarp.. : Hann vill ólmur taka upp evruna
Ögmundur: Fékk þá æðislegu hugmynd að ef til vill væri bara best ef bankarnir færu úr landi????
Magnús þór Hafsteins: Æ fyrirgefið... hann hefur alltaf talað vitleysu sorrí

Það sem er undarlegast er að það er nefnilega eitt og annað sem mætti gagnrýna....
Gegndarlaus fjárútlát ríkisins
Að það skuli vera jafnmiklu eytt til menntamála og landbúnaðar
Fáranlega flókið skattkerfi
Að trúfélag skuli vera kostað af ríkinu
Að alþingisflokkarnir meini fólki að styrkja stjórnmálaflokka eins og það vill
Að alþingisflokkarnir skammti sér rekstrarfé úr ríkissjóði
Svo eitthvað sé nefnt.......
Þess í stað er rifist um "stóru" málin s.s. hlerunarmál, RÚV frumvarpið osfrv.
Og meðan ég man. Þá er allt smjörklíputal að verða þreytt

Góðar stundir

Wednesday, December 27, 2006 

Current mood:  thankful

Var áð hlusta á The Jam í fyrsta skiptið áðan. The jam er ekki skemmtileg hljómsveit!! Verð alltaf pirraður þegar mér finnst bönd "sem eiga að vera góð" eru það svo ekki.

Fleiri ofmetnar hljómsveitir:
Rolling stones
Mezzoforte
Belle and sebastian
Coco rosie
Prince

-----------------------------------------------------------------------

Var í jólaboði í dag.

Hún Ósk mín bauð mér í jólaboð hjá fjölskyldunni sinni í dag.
Ein mín mesta gæfa í lífinu var að kynnast Ósk. Eins og það sé ekki nóg þá hún einhverja þá allbestu fjölskyldu sem til er, og frá fyrsta degi hef ég alltaf verið velkomin í hana. Það eru forréttindi sem engu verður við jafnað.

---------------------------------------------------------------------------

Byrgið

Hef verið að fylgjast með "byrgismálinu" undanfarið (eins og margir aðrir).
Ekki alla ég að tjá mig um sekt eða sakleysi Guðmundar. Né heldur um réttmæti þess að birta þessa frétt og efnistök hennar, sem af einhverjum ástæðum er orðið aðalatriði þessa harmleiks.
Hins vegar....
Er það virkilega staðreynd, eins og mér sýnist, að hver sem er geti stofnað meðferðarstofnun fyrir fíkla og alkahólista? Og það sem meira er... fengið fjármagn úr opinberum sjóðum til rekstursins. Mér virðist að það sé t.d. engin hindrun fyrir mig að hefja mína eiginn meðferðarstofnun ef mér svo sýnist!!!
Getur verið að eðli sjúkdómsins, eða öllu heldur birtingarform hans, hafi þarna eithvað að segja?
Mér segir svo hugur að meðferðarstofnanir fyrir einhverja aðra sjúkdóma s.s. alnæmi, berkla, þunglyndi, átröskun.... (svo ég nefni eitthvað) fengi ekki sömu fyrirgreiðslu.

---------------------------------------------------------------------------

Að lokum vil ég óska öllu því góða fólki sem þetta les gleðilegra jóla og farsæls komandi árs

Góðar stundir 

Monday, December 18, 2006 

Sigurjón sæti says:

hei

Sigurjón sæti says:

ketkrókur bara komin til byggða

Hallgrímur says:

neihei

Hallgrímur says:

hvenær?

Sigurjón sæti says:

bíddu

Sigurjón sæti says:

ert það ekki þú

Sigurjón sæti says:

?

Hallgrímur says:

jú alveg rétt

Sigurjón sæti says:

hvað er annars verið rúnkast

Hallgrímur says:

bara rúnki rúnki rúnk rúnk

Sigurjón sæti says:

líst á þig

Hallgrímur says:

er að spila zelda

Sigurjón sæti says:

nauts

Hallgrímur says:

júts

Sigurjón sæti says:

vonandi þann gamla

Sigurjón sæti says:

í nintendo

Hallgrímur says:

fyrsta

Hallgrímur says:

j

Hallgrímur says:

´z

Sigurjón sæti says:

á netinu eða

Hallgrímur says:

á

Hallgrímur says:

nei dl honum bara

Sigurjón sæti says:

oki

Hallgrímur says:

viltu link ef ég finn hann?

Sigurjón sæti says:

það eru ekki gerðir svona leikir lengur

Sigurjón sæti says:

endilega

Hallgrímur says:

nei alveg sammála

Hallgrímur says:

bíddu aðeins

Sigurjón sæti says:

manstu eftir batman leiknum í gömlu nintendo

Hallgrímur says:

heyrðu gefðu mér annars 30 sek þar sem þú skrifar ekkert....

Sigurjón sæti says:

ekkert mál

Sigurjón sæti says:

ég skal ekki skrifa neitt

Sigurjón sæti says:

má ég samt skrifa öðrum

Sigurjón sæti says:

?

Hallgrímur says:

ekki gera þetta ég er að reyna að bjarga kallinum í zelda og glugginn lokast alltaf þegar þú skrifar eitthvað

Hallgrímur says:

jæja komið

Saturday, December 16, 2006 

Current mood:  awake

Voðalega er þetta skrítið!

Undanfarna daga hef ég ekki getað fest svefn á kristilegum tímum. Núna er klukkan byrjuð að telja niður í fimm og ég á að mæta í vinnuna eftir 3 klst. og ekki kemur mér dúr í augu. (eða hvernig svo sem maður segir þetta)
Þetta væri mér nú ekki áhyggjuefni ef mér tækist að finna einhverja ástæðu fyrir þessu: Samviskan er hrein, ég hef látið allt óþarfa kaffiþamb eiga sig, engir teljandi fjárhagsörðuleikar, með góða vinnu, umkringdur góðu fólki sem vill mér vel, í stuttu máli sagt; Það er allt í lukkunar velstandi
Voðalega er þetta skrítið!

Þetta næturbrölt er nú samt alls ekki alslæmt, þótt síður sé. Einn af stóru kostnum við að búa hér á hjara veraldar er sá að ljósmenguninn er enginn. Þar af leiðandi hefur verið hér stórbrotinn ljósasýning yfr höfði mér undanfarið. Það er sko ekkert að því að sjá norðurljósin á fleygiferð yfir langjökli í næturhúminu (voðalega er þetta að verða ljóðrænt eitthvað).

Góðar stundir

Currently reading:
The Fall of Berlin 1945
By Antony Beevor
Release date: 29 April, 2003